Pýrít
(Endurbeint frá Glópagull)
Pýrít (brennisteinskís) er steind sem tilheyrir flokki málmsteina. Pýrít er kallað glópagull vegna þess að steindin er járnkís, FeS2, og glóir eins og gull. Nafnið pýrít kemur úr grísku og merkir eldsteinn en það vísar til þess að neisti vaknar ef járnkís er slegið saman við tinnu.
Lýsing
breytaMyndar teningslaga, gulleita og oftast nær smáa kristalla. Ferskir kristalfletir þess glóa sem gull en við veðrun slær á þá gulum og rauðgulum blæ. Pýriti hefur oft verið ruglað saman við gull en pýrítið er mun harðara og teningslaga kornin sýna glögglega að ekki er um gull að ræða.
- Efnasamsetning: FeS2
- Kristalgerð: Kúbísk
- Harka: 6-6½
- Eðlisþyngd: 4,9-5,1
- Kleyfni: Engin
Útbreiðsla
breytaPýrít er algengt á Íslandi og finnst í hitasoðnu bergi í fornum megineldstöðvum. Finnst einnig í berggöngum og er algengt við hveri á háhitasvæðum.
Heimildir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Pýrít.
- „Hvað er glópagull og hvernig verður það til“. Vísindavefurinn.
- Kristján Sæmundsson og Einar Gunnlaugsson (1999) Íslenska steinabókin. ISBN 9979-3-1856-2