Geronimo Stilton
Geronimo Stilton er persóna úr ítalskri barnabókaröð.
Saga
breytaGeronimo Stilton er fæddur í Músahöfn í Músítalíu. Hann lauk embættisprófi í músafræðum og meistaraprófi í nagdýrabókmenntum. Í rúmlega tuttugu ár hefur hann ritstýrt farsællega stærsta dagblaði Músahafnar, Músahafnarfréttum. Hann hefur að auki hlotið Bókmenntaverðlaun músabókasala fyrir rit sitt, Leyndardómurinn um horfna fjársjóðinn.
Í frístundum sínum safnar Geronimo ostaskorpum frá 18. öld og spilar einnig golf. Hann veit fátt skemmtilegra en segja uppáhalds frænda sínum sögur, honum Benjamús.
Það gerist oft að Geronimo lendir í háskalegum ævintýrum, þótt hann sé í eðli sínu afskaplega varkár. Það er þá jafnan systir hans, hún Tea, eða hinn maklausi frændi hans, Styrmir, sem lokka hann af stað. Benjamús litli er líka oft með í för. Öll þessi ævintýri skráir Geronimo í bækur sínar, sem nú eru orðnar vel þekktar.
Bækur Geronimos
breytaGeronimo Stilton hefur skrifað fjöldan allan af bókum um ævintýri sín með systur sinni Teu og frændum sínum, þeim Styrmi og Benjamús. Bækurnar eru upphaflega skrifaðar á ítölsku, en fjöldi þeirra hefur verið þýddur á önnur tungumál.
Á íslensku hafa verið þýddar eftirfarandi bækur:
- Leyndardómur smaragðsaugans
- Fluguhristingur handa greifanum
- Sjóræningjakettirnir
- Ráðgátan um Músalísu
- Dalur risabeinagrindanna.
Á Ítalíu er einnig hægt að nálgast fræðslu- og kennslubækur með Geronimo, og svo sérstakar bækur sem systir hans Tea hefur skrifað.