Dýragras
(Endurbeint frá Gentiana nivalis)
Dýragras (fræðiheiti: Gentiana nivalis) er einær jurt af maríuvandarætt. Blómin eru dökkblá eða fjólublá og 1 til 2 sentimetra löng en 7 til 8 millimetra í þvermál. Bikarblöðin eru 5 talsins. Alls verður jurtin 4-12 sm há.
Dýragras | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Gentiana nivalis L. |
Lýsing
breytaStundum stirnir af blóminu eins og það sé þakið glimmeri. Þegar krónan verður fyrir áreiti lokast hún fáum sekúndum, sem skýrir hvers vegna margt fólk heldur að dýragras sé pödduæta.
Dýragras vex í móum eða á snöggum flötum; gjarnan þar sem beitarþungi er mikill.
Heiti dýragrass
breytaHugsanlega hefur heiti dýragrass verið ýmist hið dýra gras eða digragras sem svo hefur afbakast í dýragras. Önnur þekkt nöfn á dýragrasi eru svo karlmannstryggð, arnarrót og bláin. Það er sagt gróa þar sem huldufólk býr.
Tilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Dýragras.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Gentiana nivalis.