Geirfuglasker (Reykjanesi)
Geirfuglasker er lítið sker skammt frá Reykjanesi í Gullbringusýslu. Eins og nafnið bendir til var skerið nytjað til veiða á geirfugli. Í þjóðsögunni um Rauðhöfða er talað mikið um Geirfuglasker. Geirfuglasker kemur mikið við sögu í kvæðinu Útnesjamönnum eftir Ólínu Andrésdóttur. Því lýkur á orðunum:
- Nú eru þau sokkin í sæ, þessi sker;
- enginn geirfugl heldur
- til í heiminum er.
- En sjómönnunum sunnlensku með siglandi fley
- reist hafa þau bautastein,
- sem brothætt mun ei.
- Þjóðin geymir söguna öld eftir öld;
- minning hennar lýsir
- eins og kyndill um kvöld.
Þessi landafræðigrein sem tengist Íslandi er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.