Gúlag
(Endurbeint frá Gúlagið)
Gúlag er samheiti um þrælkunarbúðir í Ráðstjórnarríkjunum, dregið af rússneskri skammstöfun á Miðstöð vinnubúða (ГУЛАГ, Главное управление лагерей). Leynilögreglan, GPÚ, síðar NKVD, enn síðar MVD, sá um að stjórna búðunum, sem voru dreifðar um öll Ráðstjórnarríkin. Fyrstu búðirnar voru settar upp 1918, skömmu eftir valdatöku bolsévíka. Gúlagfangar grófu Hvítahafskurðinn. Nokkrar bækur hafa komið út á íslensku eftir fanga í slíkum þrælkunarbúðum, en orðið varð frægt, þegar Aleksandr Solzhenitsyn lýsti Gúlaginu eins og eyjum, sem dreifðar væru um öll Ráðstjórnarríkin.
Heimildir
breyta- Elinor Lipper og Aino Kuusinen, Konur í þrælakistum Stalíns (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2015).
- Valentín González, El Campesino – Bóndinn (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2016).
- Aatami Kuortti, Þjónusta, þrælkun, flótti (Reykjavík: Almenna bókafélagið, 2016).