Framkölluð eftirspurn
Framkölluð eftirspurn er eftirspurn sem verður til vegna aukins framboðs á tilteknum gæðum. Þetta er í samræmi við lögmál framboðs og eftirspurnar þar sem aukið framboð lækkar verð gæðanna sem leiðir til aukinnar eftirspurnar.
Hugtakið er sérstaklega notað um umferðarmannvirki sem er ætlað að leysa umferðarhnúta með því að auka umferðarrýmd vegakerfisins. Síðan kemur í ljós að með betra flæði finnst fólki ákjósanlegri að nota leiðina en áður og smám saman fyllist hún. Innan skamms tíma er því umferðarhnúturinn orðinn sá sami og áður eða verri vegna aukins umferðarrýmis.[1][2] Ef dregið er úr umferðarrýmd, til dæmis með götumegrun, þá gerist hið gagnstæða, að umferð minnkar.[3] Framkölluð eftirspurn bendir til þess að sú aðferð sem virðist vera augljós til að takast á við tafir í umferð, sé í raun gagnslaus og jafnvel skaðleg. Skipulagsfræðingurinn Jeff Speck kallaði framkallaða eftirspurn „svarthol“ í skipulagsfræðunum, sem allir virðast tilbúnir að fallast á, en enginn tilbúinn til að miða við.[4]
Tilvísanir
breyta- ↑ Induced Demand Explained Simply, sótt 7. júlí 2021
- ↑ „Induced travel demand: an evidence review“. GOV.UK (enska). Sótt 7. júlí 2021.
- ↑ „Umferðin sem birtist - og hvernig hún hvarf“. Kjarninn. 31. desember 2016. Sótt 7. júlí 2021.
- ↑ Speck, Jeff (2012). Walkable City: How Downtown Can Save America, One Step at a Time. New York: North Point Press. bls. 80. ISBN 978-0-86547-772-8.