Fjörfiskur
Fjörfiskur er heiti yfir ósjálfráða, síendurtekna samdrætti í vöðvum í augnlokinu, oftast því efra, sem geta staðið í nokkra klukkutíma og allt upp í nokkra daga.
Almennt er lítið vitað um orsakir fjörfisks. Þreyta, álag og andleg streita eru þó taldir vera þættir sem geta komið fjörfisknum af stað.
Þótt fjörfiskur geti í undantekningartilvikum verið merki um undirliggjandi sjúkdóm er hann nær alltaf skaðlaus.
Heimildir
breyta- Emilía Dagný Sveinbjörnsdóttir (14.5.2004). „Hvað er fjörfiskur og hvað er til ráða?“. Vísindavefurinn.