Eyþór Ingólfsson Melsteð
Eyþór Ingólfsson Melsteð (f. 2. febrúar 1994) er íslenskur kraftlyftingamaður. Hann keppti í mótinu Sterkasti maður heims 2020 og hafnaði í 4 sæti í sínum riðli. Árið 2021 hafnaði hann í 10. sæti í sömu keppni. Eyþór á heimsmet í náttúrusteinapressu (137 kg).[1][2]
Eyþór er uppalinn í Breiðdalsvík. Eyþór keppti fyrst í vaxtarrækt áður en kraftlyftingarnar tóku við.
Eyþór er í kringum 148kg í keppnisformi.
Heimildir
breyta- ↑ „Endalaus barátta við sjálfan sig“. frettabladid.is.
- ↑ „Keppnir sem Eyþór hefur tekið þátt í síðan 2018“. Strongmanarchives. 2021. Sótt Oktober 2021.