Evrópuþingskosningar 2014
Evrópuþingskosningar voru haldnar dagana 22. til 25. maí 2014 í 28 ríkjum Evrópusambandsins. Kosinn var 751 þingmaður á Evrópuþingið.
Kosningarnar voru þær áttundu síðan þingið var fyrst kosið beint af borgurum aðildarríkja árið 1979. Þetta var í fyrsta sinn þar sem Evrópuflokkarnir tefldu fram frambjóðendum til embættis forseta framkvæmdastjórnarinnar, í samræmi við Lissabonsáttmálann.
Víða um Evrópu sóttu andstæðingar Evrópusambandsins og þjóðernishreyfingar í sig veðrið.[1] Þjóðfylkingin undir forystu Marine Le Pen fékk 25% atkvæða í Frakklandi, á Bretlandi varð Sjálfstæðisflokkur Nigel Farage stærsti stjórnmálaflokkurinn með 27,5% og Danski þjóðarflokkurinn var stærstur í Danmörku með 26,6% atkvæða.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Pólitískur jarðskjálfti“, mbl.is, 26. maí 2014
Fyrir: Evrópuþingskosningar 2009 |
Evrópuþingskosningar | Eftir: Evrópuþingskosningar 2019 |