Emeritus
Emeritus er latneskt orð sem notað er um þann einstakling sem lokið hefur störfum. Algengt er að prófessorar við háskóla beri titilinn prófessor emeritus (eða prófessor emerita fyrir konur) eftir að þeir láta af störfum sökum aldurs.[1]
Tilvísun
breyta- ↑ Geir Þ. Þórarinsson. „Hvernig eru orðin prófessor emeritus og emerita notuð?“ Vísindavefurinn, 2. mars 2015. Sótt 3. september 2019.