Húsapuntur
(Endurbeint frá Elymus repens)
Húsapuntur (fræðiheiti: Elymus repens) er gras ef ættkvíslinni Elymus sem vex víða í Evrópu, Asíu og norðvestur Afríku. Þar að auki hefur húsapuntur verið fluttur á önnur heimkynni til að draga úr jarðvegseyðingu og rofi. Húsapuntur hefur flöt, breið blöð, oft um 3-15 mm á breidd, sem eru snörp á efra borði en mjúk á því neðra. Hann dreifir sér með jarðstönglum og spretta svo upp af honum stinn og upprétt strá. Hann dregur nafn sitt af því að hann dreifir sér gjarnan í kringum hús og á bæjarhlöðum með þessum jarðstönglum. Hann getur verið hið erfiðasta gras að uppræta ef hann er yfir höfuð búinn að velja sér búsvæði.
Húsapuntur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Elymus repens (L.) Gould | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Tilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Húsapuntur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Elymus repens.