Eggjablóm
Limnanthes douglasii[1] er einær tegund blómstrandi plantna í Limnanthaceae almennt þekkt sem Eggjablóm. Það er upprunnið frá Kaliforníu og Oregon, þar sem það vex í blautu graslendi. Það getur vaxið í þéttum leirjarðvegi. Jurtinni var upphaflega safnað af Skoska landkönnuðinum og grasafræðingnum David Douglas, sem kannaði vesturströnd Norður-Ameríku um 1820.
Eggjablóm | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Limnanthes douglasii R. Br. |
Jurtin hefur hvít blóm með gulri miðju, þaðan sem almennt heiti tegundarinnar kemur (einnig á ensku; "poached egg plant"), en blómliturinn getur verið breytilegur á milli undirtegunda. Þetta er vinsælt sumarblóm. Það dregur að sveifflugur í garðinn sem svo éta blaðlýs og einnig vinsælt af býflugum. Það er sjálffrjóvgandi, og getur stundum haldið sér við.
Það eru fimm undirtegundir:
- L. douglasii subsp. douglasii R. Br., er ættað úr strandfjöllum og dölum suðvestur Oregon suður til San Francisco flóa
- L. douglasii subsp. nivea (C.T. Mason) C.T. Mason, með að mestu leiti hvítum blómum, vex í strandfjöllum norður Kaliforníu
- L. douglasii subsp. rosea (Benth.) C.T. Mason, er í Central Valley (Kaliforníu) og nærliggjandi hæðum, oft með bleikum æðum á krónublöðunum
- L. douglasii subsp. sulphurea (C.T. Mason) C.T. Mason, er sjaldgæf gulblómstrandi undirtegund einlend á "Bay Area"
- L. douglasii subsp. striata (Jeps.) Morin, hefur nýlega verið sett undir þessa tegund; hún kemur fyrir í Klamath fjöllum og norður og mið Sierra Nevada
Tilvísanir
breyta- ↑ USDA, NRCS (n.d.). „Limnanthes douglasii“. The PLANTS Database (plants.usda.gov) (enska). Greensboro, North Carolina: National Plant Data Team. Sótt 26. janúar 2016.
Ytri tenglar
breyta