Kranskollar
(Endurbeint frá Echeveria)
Kranskollar (fræðiheiti: Echeveria) eru ættkvísl þykkblöðunga af ættinni Crassulaceae. Í ættkvíslinni eru yfir 150 tegundir, flestar ættaðar frá Mexíkó og Texas, en einnig Kaliforníu og Perú. Ættkvíslin dregur nafn sitt af mexíkóskum grasafræðingi, Atanasio Echeverría y Godoy.[1]
Kranskollar | ||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||
| ||||||||||
Samheiti | ||||||||||
Allir kranskollar eru með stutt, holdug blöð sem vaxa í hvirfingum. Blómin sitja á greinóttum stönglum sem vaxa upp úr blaðhvirfingunum. Kranskollar eiga það til að blómstra snemma árs. Auðvelt er að fjölga kranskollum með hliðarsprotum sem vaxa út frá plöntunni, en erfitt er að rækta þá af fræi.[1]
Heimildir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Echeveriaia.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Eceveria.