Capacent er keðja norrænna fyrirtækja sem sérhæfa sig í ráðgjöf og ráðningum. Starfsmenn Capacent á Íslandi eru 100 talsins og 300 manns starfa hjá keðjunni í hinum Norðurlöndunum til samans.

Capacent
Rekstrarform Eignarhaldsfélag
Stofnað Fáni Íslands Reykjavík, Ísland (1992)
Staðsetning Borgartún 27, Reykjavík, Íslandi
Lykilpersónur Ingvi Þór Elliðasson
Starfsemi Ráðningar og ráðgjöf
Starfsfólk 100
Vefsíða www.capacent.is

Saga þess einkennist af sameiningum við bæði innlend ráðgjafarfyrirtæki og erlend. Höfuðstöðvar Capacent á Íslandi eru í Borgatúni og forstjóri þess er Ingvi Þór Elliðasson.

Nafni fyrirtækisins var breytt í Capacent árið 2006 en Capacent-nafnið er samsett úr ensku orðunum Capability og Center.

Saga Capacent

breyta

Grunnurinn að rannsóknarsviði Capacent var lagður árið 1990 þegar rannsóknarfyrirtækið Íslenskar markaðsrannsóknir var stofnað. Fyrirtækið var á sviði stjórnenda og leiðtogaþjálfunnar. Tveimur árum seinna eignaðist fyrirtækið umboðið fyrir Gallup á Íslandi. Fyrirtækið sameinaðist ráðgjafafyrirtækinu Ráðgarði árið 2000 undir nafninu IMG. Ráðgarður var ráðgjafarfyrirtæki sem sérhæfði sig í ýmis konar rekstrarráðgjöf og gæðastjórnun. Sama ár keypti félagið ráðningarskrifstofuna Liðsauka, en voru ekki sameinaðar fyrr en árið 2004. Strax árið eftir varð Corporate Lifecycles International hluti af félaginu en það sérhæfði sig í stefnumótun. Félagið hóf samstarf við SHL sem sérhæfir sig í prófum og matsaðferðum í ráðningum. Árið 2002 sameinaðist fyrirtækið Deloitte ráðgjöf sem var stofnað af Deloitte með áherslu á fjármálaráðgjöf. Árið 2005 sameinaðist félagið öðru ráðgjafarfyrirtæki, KPMG ráðgjöf.

Capacent Gallup er aðili að Gallup International og vinnur samkvæmt gæðastöðlum sem samtökin hafa þróað síðastliðna áratugi. Capacent Gallup fékk opinbera ISO vottun í júní 2004 og tekur ISO 9001 gæðastaðallinn til allrar starfsemi Capacent Gallup. Rannsóknarsvið Capacent hefur einnig tengingar við fleiri alþjóðleg rannsóknarfyrirtæki, þeirra stærst er AC Nielsen.

Sameinað félag Gallup og Ráðgarðs, Mannafl var fyrst íslenskra ráðningarfyrirtækja að bjóða upp á persónuleikapróf sem hafði verið staðlað og staðfært fyrir íslenskan vinnumarkað.[heimild vantar]

Capacent Corporate Finance (áður Capacent Glacier) var stofnað í mars árið 2009. Félagið er sjálfstæður lögaðili með starfsleyfi sem verðbréfafyrirtæki frá Fjármálaeftirlitinu. Capacent Corporate Finance hefur komið að margvíslegum verkefnum á sviði fjárfestingaráðgjafar, verðmatsvinnu og umbreytingu fyrirtækja.

Ráðgjafar Capacent eru meðal annars sérhæfðir í mannauðsráðgjöf, markaðsráðgjöf, rekstrarráðgjöf og hagræðingarráðgjöf. Þekktustu vörumerki og lausnir Capacent á Íslandi eru svo dæmi séu nefnd Þjóðarpúlsinn, vinna.is, vinnustaðagreining (Gallup Workplace Audit) og Capacent Planner.

Útrás

breyta

Capacent hóf að byggja upp starfsemi sína utan Íslands haustið 2005 með því að festa kaup á KPMG Ráðgjöf í Danmörku og sameinast danska félaginu LogistikGruppen A/S árið 2006. Ári siðar kaupir Capacent Epinion A/S, eitt af leiðandi fyrirtækjum Danmerkur á sviði markaðsrannsókna. Árið 2008 keypti danska félagið IKU, sem sérhæfir sig í ráðningum, þjónustu vegna uppsagna og ýmissi annarri markaðsráðgjöf. Sama ár keypti Capacent danska ráðgjafafyrirtækið Drescher & Schröder og styrkir þar með sérfræðiþjónustu sína í innkaupamálum og sænska fyrirtækið Capto Financial Consulting. Höfuðstöðvar Capacent voru fluttar til Danmerkur árið 2009. Sameiginlegt eignarhald Capacent-fyrirtækjanna rofnaði árið 2010 og eru þau nú rekin sem sjálfstæðar einingar. Þau eiga áfram með sér samstarf og starfa undir sama nafni.

Gjaldþrot

breyta

Rekstur Capacent á Íslandi komst í þrot í september 2010 eftir að félagið hafði átt í viðræðum við viðskiptabanka sinn undanfarna átján mánuði um hvernig mætti tryggja að rekstur félagsins stæði undir skuldbindingum til framtíðar. Þær viðræður skiluðu ekki árangri og varð niðurstaðan sú að starfsfólk Capacent stofnaði nýtt félag sem yfirtók reksturinn og hefur haldið starfseminni áfram undir sama nafni. Tíu árum seinna lauk svo sögu Capacent endanlega þegar 50 manns misstu vinnuna við gjaldþrot félagsins.[1]

Tenglar

breyta
  1. Hilmarsdóttir, Sunna Kristín. „Ráðgjafafyrirtækið Capacent gjaldþrota - Vísir“. visir.is. Sótt 6. september 2022.