Fótgíma
(Endurbeint frá Calvatia excipuliformis)
Fótgíma (fræðiheiti: Calvatia excipuliformis) er físisveppur sem er auðvelt að greina frá öðrum skyldum sveppum vegna þess hve hún er með langan staf. Kólfurinn er hringlaga og samvaxinn fætinum. Yfirborð sveppsins er þakið litlum nöbbum. Með aldrinum verður fótgíman brúnni og opnast að ofan þar sem myndast skál full af brúnum gróum.
Fótgíma | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Fótgíma (Calvatia excipuliformis)
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Calvatia excipuliformis (Scop.) Perdeck |
Fótgíma er góður ætisveppur en gæta þarf að því að tína aðeins mjög unga (alhvíta) sveppi.
Fótgíma er algeng um allt Ísland.
Tilvísanir
breytaWikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Fótgíma.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Calvatia excipuliformis.