Burðarlaupur
Burðarlaupur eða meis er rimlakassi til að flytja í hey eða annan varning. Laupar voru fyrr á öldum mikilvægt tæki til flutninga í Færeyjum vegna landshátta þar. Menn báru laupa á baki sem var bundinn með hrosshársreipum og bandi yfir höfuð svo hendur væru frjálsar á meðan gengið var. Þannig var hægt að flytja hey frá litlum heyskikum í bröttum hlíðum og fisk, egg, ull og ýmsan varning annan. Laupur var líka mælieining og voru í notkun ýmsar stærðir af laupum og ýmsar gerðir. Afar algengt var að flytja mó til eldiviðar í laupum. Færeyska orðið fyrir laup er leypur. Orðatiltækið „Að leggja upp laupana“ vísar til slíkra rimlakassa.
Heimildir
breyta- Með laup á baki fram á elliár - Færeysk burðartækni
- Føroyski leypurin (fyrri grein). Gerð og snið — Leypanóvn. Fróðskaparrit, 4. nummar (01.01.1955), Blaðsíða 32
- Føroyski leypurin (seinni grein). Leypamál — Leypurin sum amboð.Fróðskaparrit, 5. nummar (01.01.1956), Bls.108
- Heylaupur eða meis (mynd á sarpur.is)