Bundið slitlag
fast vegyfirborð
Bundið slitlag er fast vegyfirborð sem samanstendur annað hvort af malbiki, steinsteypu eða annars konar klæðingu. Á Íslandi voru 5.308 kílómetrar af þjóðvegum með bundnu slitlagi í árslok 2012.[1] Malbik er notað á umferðarþyngstu vegi en klæðing á þá fáfarnari.[2]
- ↑ „Slitlög“. Vegagerðin. [skoðað 09-07-2013].
- ↑ „Ræða Sturlu Böðvarssonar á Alþingi“. Alþingi, 14. febrúar 2001, [skoðað 09-07-2013].