Brúngresi
Brúngresi (fræðiheiti Geranium phaeum) er fjölært blóm af blágresisættkvísl.
Geranium phaeum | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Geranium phaeum L. | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Geranium lividum L'Herit |
Lýsing
breytaBrúngresi verður 40 til 80 sm hátt, með stórum laufblöðum í breiðri hvirfingu. Þau eru djúpflipótt og skiftast í 7 til 9 flipa sem eru sepóttir og gróftenntir. Oft eru brúnir blettir eða yrjur á efra borði sem mynda hálfhring innan við blaðvikin. Blómin eru nokkur saman og vísa til hliðanna eða lútandi, oftast dökk-brúnrauð til fjólublá, sjaldan hvít.[1]
Útbreiðsla
breytaUppruni brúngresis er í Spáni, Ítalíu, Frakklandi, Sviss, Austurríki, Balkanskaga, Búlgaríu, Ungverjalandi, Tékklandi, Slóvakíu, Póllandi, Belarus, Rúmeníu og Úkraínu. Nú er það einnig ílent á Bretlandseyjum, Hollandi, Belgíu og Norðurlöndunum.
Ræktun
breytaBrúngresi er auðræktað og harðgert. Þykir frekar sérkennilegt en fallegt. Er til dæmis afbrigðið 'Samobor' ræktað vegna blaðlitar. Önnur afbrigði eru 'Album', 'Joan Baker', 'Lily Lovell' 'Samobor' Strangman, 'Variegatum'.
Tilvísanir
breyta- ↑ Phillips, Ellen; Colston Burrell, C. (1993), Rodale's illustrated encyclopedia of perennials, Emmaus, Pa.: Rodale Press, bls. 373–76, ISBN 0875965709
- Flóra Norðurlandanna
- Lystigarður Akureyrar Geymt 1 október 2020 í Wayback Machine