Böðvar Guðlaugsson
Böðvar Guðlaugsson (14. febrúar 1922 – 16. ágúst 2007) var íslenskur rithöfundur, ljóðskáld og kennari. Hann var einn af þeim fyrstu á Íslandi til að ljúka sérkennslunámi. Ljóð hans hafa birst víða og orti hann meðal annars í Spegilinn. Hann samdi textann við Kópavogsbrag, lag sem Ríó tríó flutti. Einnig samdi hann limru:
- Þótt veraldargengið sé valt
- og úti andskoti kalt
- með góðri kellingu
- og gengisfellingu
- bjargast yfirleitt allt.
Ritverk
breytaBarnabækur
breyta- Doddi fer í siglingu (1993)
Ljóðabækur
breyta- Brosað í kampinn, nokkur skopkvæði og hermiljóð (1956)
- Heilsubótagrín, grínkveðskapur og gamanþættir (1960)
- Glott við tönn (1966)
- Spegilsútgáfan (1966)
- Ljóð af tvennum toga (1987)