Bókfell er verkað skinn, sem notað var til að skrifa á bækur og önnur rit. Bókfell er ósútað skinn, rotað, skafið og sléttað. Skinnið er einkum af kálfum, kindum og geitum. Farið var að nota pergament í handrit á 2. öld og hélst svo uns pappír leysti það af hólmi. Pergament var (og er) einnig notað við bókband og í trumbur.

Þýskur bókbindari á 16. öld.

Íslendingasögurnar voru t.d. skrifaðar á bókfell. Bækur í slíku formi eru oftast kallaðar skinnhandrit.

Tengill

breyta
  • „Hefur einhverjum dottið í hug að skoða erfðaefni í íslenskum skinnhandritum til að finna út hvaðan skinnin komu?“. Vísindavefurinn.
  • Fjöður og bókfell; grein í Morgunblaðinu 1971 Geymt 5 mars 2016 í Wayback Machine
  • Ríkisskjalasafnið í Stokkhólmi; grein í Morgunblaðinu 1988
   Þessi bókmenntagrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.