Alpasól
Alpasól (fræðiheiti: Papaver sendtneri) vex í fjöllum Mið-Evrópu. Hún er skammlífur fjölæringur, stundum ræktuð sem tvíær, með stórum blómum á enda loðins stönguls uppúr hvirfingu mjórra, fjaðurskiftra grænna blaða. Hún blómstrar mest allt sumarið og getur sáð sér allnokkuð. Villt blómstrar hún hvítum blómum.
Alpasól | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Papaver sendtneri A. Kern. ex Hayek[1] | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Papaver pyrenaicum sendtneri (Kern. ex Hayek) Fedde |
Hún er oft talin til fjallasólar.[2]
Ræktun
breytaAlpasól kann best við léttann, vel framræstann jarðveg og sól. Alpasól eins og flestir valmúar er með mjög smá fræ og langa stólparót sem þolir illa flutning. Hún hentar í steinhæðir.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ Hayek (1903) , In: Österr. Bot. Zeitschr. 53: 406
- ↑ https://www.catalogueoflife.org/data/taxon/4CJ7N%7Ctitill=[óvirkur tengill] Species 2000 & ITIS Catalogue of Life: 2014 Annual Checklist.|sótt= 26 May 2014 |höfundar= Roskov Y., Kunze T., Orrell T., Abucay L., Paglinawan L., Culham A., Bailly N., Kirk P., Bourgoin T., Baillargeon G., Decock W., De Wever A., Didžiulis V. (ed)|dags= 2014|verk= |útgefandi=Species 2000: Reading, UK.
- ↑ Hólmfríður Á. Sigurðardóttir (1995) Garðblómabókin (Íslenska Bókaútgáfan; ISBN 9979-877-03-0) bls 123
Wikilífverur eru með efni sem tengist Papaver sendtneri.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Alpasól.