Alþjóðasamband um jarðmælingar og jarðeðlisfræði
Alþjóðasamband um jarðmælingar og jarðeðlisfræði, eða IUGG – (International Union of Geodesy and Geophysics) – er sjálfstætt samband vísindasamtaka sem helga sig (eðlisfræðilegum) rannsóknum á jörðinni og nánasta umhverfi hennar, og leitast við að nýta þá þekkingu sem aflast í þágu mannlegs samfélags. Sambandið var stofnað árið 1919. Meðal verkefna sem sambandið fæst við eru náttúruauðlindir í jarðskorpunni, umhverfisvernd og hvernig draga má úr áhrifum náttúruhamfara.
Með tilkomu geimferða hefur sambandið farið að sinna samanburðarrannsóknum á tunglinu og reikistjörnunum.
Rúmlega 100 lönd og um 60 alþjóðasamtök eru aðilar að sambandinu eða dóttursamtökum þess. Á fjögurra ára fresti efnir sambandið til 5-10.000 manna 'allsherjarþings', sem stendur í hálfan mánuð. Þar er fundað um einstök fagsvið og kosið í ráð, sem fer með æðstu stjórn sambandsins á milli þinga. Í ráðinu eru 1-3 fulltrúar frá hverju aðildarlandi. Fulltrúi Íslands, frá 2007, er Árni Snorrason, þá forstöðumaður Vatnamælinga Orkustofnunar, nú forstjóri Veðurstofu Íslands. Forseti sambandsins, frá 2007, er Tom Beer frá Ástralíu.
Innan sambandsins eru átta alþjóðasamtök:
- Alþjóðasamtök um jarðmælingar, eða IAG – (International Association of Geodesy).
- Alþjóðasamtök um jarðsegulmagn og heiðhvolfsvísindi, eða IAGA – (International Association of Geomagnetism and Aeronomy).
- Alþjóðasamtök um veðurfræði og rannsóknir á lofthjúpi jarðar, eða IAMAS – (International Association of Meteorology and Atmospheric Sciences).
- Alþjóðasamtök um rannsóknir á vatnafari jarðar, eða IAHS – (International Association of Hydrological Sciences).
- Alþjóðasamtök um ís- og jöklarannsóknir, eða IACS – (International Association for the Cryospheric Sciences).
- Alþjóðasamtök um eðlisfræði úthafanna, eða IAPSO – (International Association for the Physical Sciences of the Oceans).
- Alþjóðasamtök um jarðskjálftafræði og eðlisfræði innviða jarðar, eða IASPEI – (International Association of Seismology and Physics of the Earth's Interior).
- Alþjóðasamtök um eldfjallafræði og efnafræði innri hluta jarðar, eða IAVCEI – (International Association of Volcanology and Chemistry of the Earth's Interior).
Innan sambandsins eru einnig þrjár fagnefndir:
- Nefnd um jarðeðlisfræðilega áhættu og varanleika umhverfisins, eða GeoRisk – (Commission on Geophysical Risk and Sustainability).
- Nefnd um stærðfræðilega jarðeðlisfræði, eða CMG – (Commission on Mathematical Geophysics).
- Nefnd um rannsóknir á jarðdjúpunum, eða SEDI – (Committee on the Study of Earth's Deep Interior).
Tenglar
breyta- IUGG Vefsíða IUGG.