Aappilattoq
Aappilattoq er heiti tveggja þorpa á Grænlandi. Annað þeirra er á Suður-Grænlandi, á 60°08′ N 44°18′ V, um 50 km frá Hvarfi og búa þar um 160 manns. Hitt þorpið er á Vestur-Grænlandi á 72°53'N 55°35'V.
-
Fjall í grennd við Aappilattoq á Suður-Grænlandi. Fjöllin rísa í nær 2000 metra hæð.
-
Brattir klettaveggir einkenna landslagið við Aappilattoq á Suður-Grænlandi.