Læsivarðar bremsur
(Endurbeint frá ABS bremsur)
Læsivarðar bremsur eða ABS bremsur er öryggiskerfi í bifreiðum sem gerir hjólum bílsins kleift að halda veggripi við bremsun, án þess að hjólin læsist eða bíllinn skrensi stjórnlaust. ABS bætir stjórn bílsins og minnkar bremsuvegalengd bæði í hálku og á þurrum vegi.
Eftir að ABS varð algengt í fjöldaframleiddum bílum, þá hafa læsivarðar bremsur þróast. Nýlegar útgáfur koma ekki eingöngu í veg fyrir að hjólin læsist, heldur stjórna stafrænt bremsukraftinum í fram- og afturhjólum og hindra að bíllinn skrensi. Þessir möguleikar eru þekktir sem EBD-hemlajöfnun og ESC-stöðugleikakerfi.