Undirforrit
Undirforrit (fall, aðferð eða stefja) eru safn setninga í forritum sem eru endurnýtanlegar.
Notkun undirforrita
breytaÞau eru gagnleg ef við höfum forritsbút sem þarf að framkvæma oft. Við spörum pláss með því að geyma forritsbútinn á einum stað í minni. Forrit sem kallar á undirforrit þarf ekki að vita neitt um smáatriðin. Þetta eykur læsileika forrita.
Kóðadæmi úr C og C++
breytaHérna er einfalt dæmi um undirforrit sem hefur eina færibreytu (tala) og skilar henni í öðru veldi með því að margfalda henni með sjálfri sér (tala * tala):
int ferningstala (int tala)
{
return (tala * tala);
}
þar sem það er skilgreint að undirforritið skili heiltölu eða int og að hún taki inn eina tölu sem er líka heiltala (þ.e. talan tala). Svo mætti kalla á þetta fall svona:
int main()
{
int x, y; // Skilgreini heiltölurnar x og y
y = 2; // Gef y gildið 2
x = ferningstala(y);
}
þar sem x er gefið gildið sem kemur úr undirforritinu ferningstala() þegar talan y er sett í gegnum það, talan y hefur þarna gildið og er send í gegnum undirfallið sem margfaldar hana með sjálfri sér og því verður .
Tengt efni
breyta- Fall í stærðfræði
- Samsetning falla (tölvunarfræði)
Heimild
breyta- Kári Harðarson (2003).Undirforrit: Háskólinn í Reykjavík, Forritunarmál haustið 2003.