Þelgró
Þelgró (teliospore eða teleutospore) á við um sérhæfð gró sveppa, til dæmis sumra ryðsveppa (Uredinomycetes) og brandsveppa (Ustilaginomycetes). Þelgró hafa þykka frumuveggi sem auðveldar þeim að liggja í dvala í langan tíma. Grókólfur vex út úr þelgrói þegar það spírar.
Útlitseinkenni
breytaÞelgró eru samansett af einni, tveimur eða fleiri tvíkjarna frumum.
Þelgró eru gjarnan dökkleit og með þykka frumuveggi, sérstaklega meðal tegunda sem leggjast í dvala yfir vetur. Ættkvíslin Puccinia einkenndist áður ef tvífruma þelgróum en það greiningareinkenni er ekki notað lengur.