Úr fjötrum
Úr fjötrum (Unfettered) er útilistaverk frá 1992 eftir Gest Þorgrímsson. Verkið stendur fyrir utan Hafnarborg í Hafnarfirði.
Verkið samanstendur af þremur blágrýtissúlum sem saman halda uppi bronsskúlptúr á milli sín. Það er staðsett við eystri gafl Hafnarborgar. Verkið stendur á lágum fótstalli úr steini og er afmarkað af með hellum í kring. Dökkar náttúruhellur og dökkir kantsteinar mynda hring næst fótstallinum og því næst taka ljósar gangstéttarhellur við sem mynda ytri hringinn í kringum verkið.