Örorka
Örorka nefnist það þegar einstaklingur hefur takmarkaða starfsgetu sökum lömunar, fötlunar eða sjúkdóms. Þetta verður þá einnig til þess að viðkomandi getur ekki lifað „venjulegu” lífi.
Örorka getur þannig verið sökum meðfædds eiginleika eða slyss eða veikinda sem eiga sér stað seinna á lífsleiðinni.
Örorka á Íslandi
breytaÁ Íslandi vinna félagasamtökin Öryrkjabandalag Íslands að því að verja hagsmuni öryrkja og vinna að framförum á aðstæðum þeirra. Íslenska velferðarkerfið tryggir öryrkjum bætur í formi örorkulífeyrisbóta. Við þær bætur geta bæst aukalegar greiðslur, svo sem ellilífeyrir eða aldurstengdar örorkubætur, allt eftir aðstæðum.
Árið 2017 var áætlað að u.þ.b. 17.900 einstaklingar fengju örorkulífeyrisbætur á Íslandi eða 8,1% fólks á aldrinum 16-66 ára. [1]
Tenglar
breyta- Heimasíða Öryrkjabandalags Íslands
- Lög um almannatryggingar
- Lög um félagslega aðstoð
- Heimasíða Freyju Haraldsdóttur[óvirkur tengill] um þau forréttindi að lifa með fötlun
Tilvísanir
breyta- ↑ 8,1% landsmanna fá greidda örorkuMbl.is, skoðað 8. júní 2019