Íslenska Wikipedia
Íslenska Wikipedia var stofnuð 5. desember 2003 og er íslensk útgáfa af Wikipediu. Íslenska Wikipedian er með yfir 50 þúsund greinar og innan við 20 virka notendur alla jafnan.
Í tilefni af tíu ára afmæli íslensku Wikipediu 5. desember 2013 var haldið málþing í Landsbókasafni Íslands.[1] Af sama tilefni voru 30 ljósmyndir teknar vegna óeirðanna á Austurvelli 1949 sem höfðu ekki áður komið fyrir sjónir almennings fengnar skannaðar frá Þjóðskjalasafni Íslands og settar á Wikimedia Commons.[2]
Þróun
breytaFrá stofnun, í desember 2003 og fram að nóvember 2005 var vöxtur íslensku Wikipediu tiltölulega hægur. Í nóvember 2005 voru vélrænt settar inn greinar um íslensk mannanöfn, yfir 3.500 greinar. Í maí 2006 var heildarfjöldi greina orðinn tíu þúsund (sjá Wikipedia:Merkisáfangar). Eftir það er sæmilega mikill vöxtur og 20 þúsund greinum er náð í febrúar 2008. Þrjátíu þúsund greinum var náð í nóvember 2010 og fjörtíuþúsund haustið 2015. 50.000 greinar náðust um mitt ár 2020.
Þegar gögn um virkni á íslensku Wikipediu eru skoðuð kemur í ljós að notendur sem eru mjög virkir á hverjum mánuði (með yfir 100 breytingar) er hægt að telja á fingrum annarrar handa en notendur sem eru virkir (með fleiri en fimm breytingar) eru í kringum 30.[3]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Málþing um Wikipediu“. Afrit af upprunalegu geymt þann 22. apríl 2014.
- ↑ „Myndir frá óeirðunum 1949 birtar“.
- ↑ „Wikipedia Statistics Icelandic“.
Tenglar
breyta- Íslenska Wikipedia: Greining á þróun, meistararitgerð í bókasafns- og upplýsingafræði eftir Hrafn H. Malmquist
- Íslensk alþýðuþekking á vefnum í tíu ár Geymt 6 desember 2013 í Wayback Machine, grein í 16. tbl. Kjarnans e. Hrafn H. Malmquist