Ægir (skip)
Ægir er varðskip Landhelgisgæslu Íslands sem kom til landsins 1968 og ber sama nafn og eldra varðskip.
Eldri Ægir (Ægir 1)
breytaVarðskipið Ægir 1 var keypt til landsins árið 1929.[1] Það var fyrsta skip Íslendinga sem búið var aðalvél sem gekk fyrir dísilolíu. Aðalvélar skipsins framleiddu um 1300 hestöfl sem gat framkallað ganghraða upp á 18 sjómílur.
Nýrra skipið
breytaÁrið 1968 kom til landsins nýtt varðskip sem hlaut einnig nafnið Ægir og komuna var eldri Ægir seldur úr landi.
Ægir var auglýstur til sölu haustið 2020.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ „Varðskipið Ægir“. tímarit.is. Sótt 19. mars 2015.
- ↑ Seldur eftir nær 50 ára þjónustuMbl.is, skoðað 3. nóvember 2020.