Árteigsvirkjun
Árteigsvirkjun er 500 kw vatnsaflsvirkjun í Þingeyjarsveit sem stofnuð var árið 2006. Eigandi virkjunarinnar er Raflækur ehf.
Túrbínusmíði í Árteigi
breytaFyrir árið 1950 hóf Jón Sigurgeirsson í Árteigi hóf smíði á litlum rafstöðvum með 12 eða 24 volta jafnstraumsrafölum. Þær voru settar í marga bæjarlæki í Þingeyjarsýslu. Hann byggði þá rafstöð fyrir Granastaðabæina sem er bæjarþyrping út með Kinnafjöllum með bæjunum Granastöðum, Ártúni, Árteigi I, Árteigi II og Fitjum. Sú stöð var síðar stækkuð og getur nú framleitt um 200 kw. Synir Jóns Eiður og Arngrímur tóku við túrbínusmíðinni og eru milli 70-80 túrbínur víðs vegar um Ísland sem framleiddar voru í Árteigi.
Heimildir
breyta- Orkuvefsjá Iceland Energy Portal Geymt 18 október 2019 í Wayback Machine
- Vélaverkstæðið Árteigi Geymt 23 janúar 2021 í Wayback Machine