Vin “K” svarar ekki

Vin „K“ svarar ekki er unglingasaga eftir Henri Vernes.

Bob Moran Nr. 18

Söguþráður

breyta

Víðsvegar í Frakklandi og Norður-Afríku hverfa menn án þess til þeirra spyrjist. Það eru hraustir og þrekmiklir verkamenn, sem geta tekið til höndunum. Samtímis hættir vin „K“ - hin leynilega tilraunastöð í Sahara - að hafa samband við umheiminn. Eitt kvöld fær Moran flugforingi undarlega heimsókn, og þegar daginn eftir leggur hann af stað í flugvél áleiðis til hinnar dularfullu Vinar „K“. - En frá þeirri stundu mætir Bob Moran hverjum andstæðingnum öðrum hættulegri. Hverjir eru þessir ókennilegu hermenn, harðir í horn að taka, sem eitthvert annarlegt vald sendir gegn honum? Moran flugforingi á ekki aðeins í höggi við menn, heldur líka algerlega ný vísindi, sem fela í sér banvæna hættu fyrir mannkynið. Tekst fáeinum ófyrirleitnum hundingjum að brjóta Moran flugforingja á bak aftur, lama viðnámsþrótt hans og gera hann að lifandi vélmenni? Örlög Bob Morans - og meira að segja alls heimsins - eru komin undir smávægilegri nálastungu. Aldrei hefur Bob Moran - hinn reyndi herflugmaður og ævintýragarpur - ratað í hættulegri ævintýri, aldrei staði tæpar á barmi dauða og tortímingar.

Aðalpersónur

breyta

Bob Moran, Claude Bory, Alabert lögreglufulltrúi, Jouvert ofursti, Clark major, Said Mussa, Lang liðsforingi, Charles Wiener.

Sögusvið

breyta

París, Frakkland - El Koufra, Sahara, Norður-Afríka.

Bókfræði

breyta
  • Titill: Vin „K“ svarar ekki
  • Undirtitill: Drengjasaga um afreksverk hetjunnar Bob Moran
  • Á frummáli: Oasis K ne répond plus
  • Upprunalegur útgefandi: Gérard & Co.
  • Fyrst útgefið: 1955
  • Höfundur: Henri Vernes
  • Þýðandi: Gísli Ásmundsson
  • Útgefandi: Prentsmiðjan Leiftur Hf.
  • Útgáfuár: 1969