Sumarólympíuleikarnir 2024

Sumarólympíuleikarnir 2024 eru alþjóðlegt fjölíþróttamót sem var haldið 26. júlí til 11. ágúst árið 2024 í París, Frakklandi. Meginhluti leikanna fór fram í París, en annars dreifðust þeir á 16 aðrar borgir á meginlandi Frakklands, auk eins viðburðar á Tahítí (brimbrettabrun) í Frönsku Pólýnesíu.

33. sumarólympíuleikarnir
Bær: París, Frakklandi
Þátttökulönd: 206
Þátttakendur: 10.714
(5.250 karlar, 5.250 konur)
Keppnir: 329 í 32 greinum
Hófust: 26. júlí
Lauk: 11. ágúst
Settir af: Emmanuel Macron forseta
Íslenskur fánaberi: Guðlaug Edda Hannesdóttir og Hákon Þór Svavarsson
Keppni í strandblaki verður á Champs de Mars.

París hefur haldið leikana áður árin 1900 og 1924 og verður þar með önnur borgin sem heldur þá þrisvar, á eftir London. Árið 2024 verða hundrað ár liðin frá leikunum 1924. Þetta verða sjöttu ólympíuleikarnir sem haldnir verða í Frakklandi og þeir fyrstu eftir Vetrarólympíuleikana 1992 í Albertville. Eftir þessa ólympíuleika verða leikarnir aftur haldnir á fjögurra ára fresti, en vegna frestunar ólympíuleikanna í Tókýó (út af kórónaveirufaraldrinum) liðu aðeins þrjú ár frá þeim leikum að þessum.

Í París var í fyrsta sinn keppt í breikdansi sem jafnframt var fyrsta dansíþróttin í sögu sumarólympíuleikanna. Þetta voru síðustu ólympíuleikarnir í forsetatíð Thomas Bach sem hefur verið forseti Alþjóðaólympíunefndarinnar frá 2013. Í fyrsta sinn krpptu jafn margar konur og karlar . Deilt var um þátttöku íþróttafólks frá Rússlandi og Hvíta-Rússlandi á þessum leikum. Í júlí 2023 var ákveðið að það fengi að keppa sem óháð íþróttafólk, án þjóðfána. Áætlað er að leikarnir í París hafi kostað 8,3 milljarða evra.

Aðdragandi og skipulagning

breyta

Auk Parísar sóttust fjórar aðrar borgir eftir að halda leikana: Hamborg, Búdapest, Róm og Los Angeles. Með tímanum heltust borgirnar úr lestinni ein af annarri. Hamborg dró umsókn sína til baka þann 29. nóvember 2015 í kjölfar íbúakosningar. Rómaborg fylgdi í kjölfarið þann 21. september 2016 á grunni fjárhagserfiðleika. Þann 22. febrúar 2017 ákvað Búdapest að falla frá umsókn sinni eftir að andstæðingar mótshaldsins höfðu náð að safna nægum fjölda undirskrifta til að knýja fram íbúakosningu.

Þegar ljóst var að valið stæði bara milli tveggja borga ákvað Ólympíunefndin að útnefna gestgjafa fyrir leikana 2024 og 2028 um leið. Í lok júlí 2017 var ákveðið að úthluta París fyrri leikunum en Los Angeles þeim síðari.

Mótsstaðir

breyta

Flest íþróttamótin voru haldin í París og nágrenni, þar á meðal í nágrannaborgunum Saint-Denis, Le Bourget, Nanterre, Versailles og Vaires-sur-Marne. Handboltamótin voru í Lille, sem er 225 km frá París; siglingamótið og nokkrir knattspyrnuleikir fóru fram í Marseille, sem er 777 km frá París. Brimbrettamótið fór fram í þorpinu Teahupo'o í franska handanhafshéraðinu Frönsku Pólýnesíu, sem er 15.716 km frá París. Knattspyrnuleikir fóru líka fram í fimm öðrum borgum: Bordeaux, Décines-Charpieu, Nantes, Nice og Saint-Étienne.

Parísarsvæðið

breyta
 
Stade de France
Staður Mót Sæti Staða
Stade Yves-du-Manoir Hokkí 15.000 Endurnýjaður
Stade de France Sjö manna ruðningur 77.083 Núverandi
Frjálsar íþróttir
Lokahátíð
Paris La Défense Arena Vatnaíþróttir (sund, úrslit í sundknattleik) 15.220
Porte de La Chapelle Arena Badminton 8.000 Viðbætur
Fimleikar (nútímafimleikar)
Sundmiðstöð Parísar Vatnaíþróttir (undankeppni í sundknattleik, dýfingar, listsund) 5.000
Le Bourget-klifurmiðstöðin Íþróttaklifur 5.000 Tímabundið
Parc des Expositions de Villepinte Hnefaleikar (undankeppni) 6.000 Núverandi
Nútímafimmtarþraut (skylmingar)

Miðborg Parísar

breyta
 
Champ de Mars
 
Grand Palais
Staður Mót Sæti Staða
Parc des Princes Knattspyrna
(riðlakeppni og verðlaunaleikir)
48.583 Núverandi
Stade Roland Garros Tennis 36.000
(15.000 + 12.000 + 9.000)
Hnefaleikar (úrslit)
Paris Expo Porte de Versailles Blak 18.000
(12.000 + 12.000)
Borðtennis
Handbolti (undankeppni)
Kraftlyftingar
Accor Arena Fimleikar (áhalda- og trampolínfimleikar) 15.000
Körfuknattleikur (úrslit)
Grand Palais Skylmingar 8.000
Tækvondó
Place de la Concorde Körfuknattleikur (3x3) 30.000 Tímabundið
Breikdans
Hjólreiðar (BMX)
Hjólabretti
Hôtel de Ville Frjálsar íþróttir (rásmark maraþonhlaups) 1.500
Pont Alexandre III Vatnaíþróttir (maraþonsund)
Þríþraut
Hjólreiðar (mark í tímaþraut)
Pont d'Iéna Frjálsar íþróttir (kappganga) 13.000
(3.000 í sæti)
Hjólreiðar (götuhjólreiðar)
Eiffel-völlurinn Strandblak 12.000
Grand Palais Éphémère Júdó 9.000
Ólympísk glíma
Les Invalides Bogfimi 8.000
Frjálsar íþróttir (mark í maraþonhlaupi)
Hjólreiðar (rásmark tímaþrautar)

Versalir

breyta
 
Le Golf National
Staður Mót Sæti Staða
Garðarnir við Versalahöll Hestaíþróttir 80.000
(22.000 + 58.000)
Tímabundið
Nútímafimmtarþraut
(nema skylmingar)
Le Golf National Golf 35.000 Núverandi
Élancourt Hjólreiðar (fjallahjólreiðar) 25.000
Vélodrome de Saint-Quentin-en-Yvelines Hjólreiðar (brautarkeppni) 5.000
Hjólreiðar (BMX-kappjólreiðar) 5.000

Utan Parísar

breyta
 
Parc Olympique Lyonnais
 
Roucas Blanc-smábátahöfnin, Marseille
Staður Mót Sæti Staða
Stade Pierre-Mauroy, Lille Körfuknattleikur (riðlakeppni) 26.000 Núverandi
Handbolti (úrslit)
Sjóíþróttamiðstöð Île-de-France, Vaires-sur-Marne Kappróður 22.000
Kanó- og kajakróður (svig, sprettur)
Stade Vélodrome, Marseille Knattspyrna
(riðlakeppni, fjórðungsúrslit, undanúrslit í kvenna- og karlaflokki)
67.394
Parc Olympique Lyonnais, Lyon Knattspyrna
(riðlakeppni, fjórðungsúrslit, undanúrslit í karla- og kvennaflokki, bronskeppni kvenna)
59.186
Nouveau Stade de Bordeaux, Bordeaux Knattspyrna
(riðlakeppni, fjórðungsúrslit)
42.115
Stade Geoffroy-Guichard, Saint-Étienne Knattspyrna
(riðlakeppni)
41.965
Allianz Riviera, Nice Knattspyrna
(riðlakeppni)
35.624
Stade de la Beaujoire, Nantes Knattspyrna
(riðlakeppni, fjórðungsúrslit, bronskeppni karla)
35.322
Roucas Blanc-smábátahöfnin, Marseille Siglingar 5.000
Teahupo'o, Tahítí Brimbrettabrun 5.000
Centre national de tir sportif, Châteauroux Skotgreinar 3.000

Aðrir tengdir staðir

breyta
 
Ólympíuþorpið í Saint-Denis.
Staður Tegund Sæti Staða
Jardins du Trocadéro og Signa Setningarathöfn 330.000
(30.000 + 300.000)
Tímabundið
L'Île-Saint-Denis Ólympíuþorpið 18.000 Viðbætt
Parc de l'Aire des Vents, Dugny Fjölmiðlaþorp Tímabundið
Le Bourget sýningar- og fjölmiðlamiðstöð Alþjóðleg útsendingarmiðstöð 15.000 Núverandi
Palais des congrès de Paris Aðalfjölmiðlamiðstöð

Leikarnir

breyta

Íþróttagreinar

breyta

Samkvæmt reglum Alþjóðaólympíunefndarinnar sem hafa verið í gildi frá 2017, voru 28 „kjarnagreinar“ á leikunum, og allt að sex aukagreinar sem hægt var að bæta við á hverjum leikum. Þessar aukagreinar eru valdar af skipulagsnefnd leikanna og sendar til Alþjóðaólympíunefndarinnar ekki síðar en fimm árum fyrir leikana, svo hægt sé að tryggja þátttöku[1][2] að því gefnu að heildarfjöldi þátttakenda yrðu ekki meiri en 10.500.[3] Á 131. fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í september 2017 samþykkti nefndin 28 íþróttagreinar sem voru á dagskrá leikanna 2016 fyrir París 2024, og bauð jafnframt Parísarnefndinni að senda tillögu um allt að fimm aukagreinar.[4][5]

Þegar París sóttist eftir að halda leikana í ágúst 2017, tilkynnti skipulagsnefndin að hún myndi ræða við Alþjóðaólympíunefndina og samtök rafíþrótta um möguleikann á því að taka rafíþróttamót með á leikana 2024.[6][7] Í júlí 2018 tilkynnti Alþjóðaólympíunefndin að hún myndi ekki kanna þann möguleika fyrir leikana 2024.[8] Í febrúar 2019 stakk skipulagsnefndin upp á því að bæta breikdansi við, auk hjólabretta, klifurs og brimbrettabruns, sem höfðu áður verið samþykktar fyrir leikana 2020.[9][10][8] Þessar fjórar greinar voru samþykktar á 134. fundi Alþjóðaólympíunefndarinnar í Lausanne 24. júní 2019.[10][8][11]

Í París voru 329 keppnir í 32 íþróttagreinum. Þetta voru því fyrstu sumarólympíuleikarnir frá leikunum 1960 þar sem voru færri greinar en á fyrri leikum. Karate og mjúkbolti höfðu báðar verið felldar út úr dagskránni fyrir leikana 2020 (þar með duttu 10 keppnir út), og fjórar keppnir hafa dottið út í lyftingum. Í kanóróðri var tveimur sprettkeppnum skipt út fyrir tvær svigkeppnir þannig að heildarfjöldi keppna var 16. Með breikdansi bættust tvær keppnir við dagskrána, og í klifri var blandaðri keppni skipt í tvær aðskildar keppnir í hraðklifri og hnullungum og línu fyrir bæði kyn.[12]

Í febrúar 2023 tilkynntu samtökin USA Boxing að þau hygðust sniðganga heimsmeistaramótið 2023 (skipulagt af Alþjóðahnefaleikasambandinu) þar sem rússneskir og hvítrússneskir keppendur fengu að keppa án takmarkana. Um leið sökuðu samtökin alþjóðasamtökin um að eyðileggja undirbúning fyrir hnefaleikakeppnina á ólympíuleikunum. Pólland, Sviss, Holland, Bretland, Írland, Tékkland og Kanada, tóku síðan undir afstöðu Bandaríkjamanna.[13]

Dagskrá

breyta
SA Setningarathöfn Keppni 1 Úrslitakeppni LH Lokahátíð
Júlí/ágúst 2024 Júlí Ágúst Úrslit
24.
Mið
25.
Fim
26.
Fös
27.
Lau
28.
Sun
29.
Mán
30.
Þri
31.
Mið
1.
Fim
2.
Fös
3.
Lau
4.
Sun
5.
Mán
6.
Þri
7.
Mið
8.
Fim
9.
Fös
10.
Lau
11.
Sun
  Hátíðir SA LH
Sundíþróttir   Listsund 1 1 2
  Dýfingar 1 1 1 1 1 1 1 1 8
  Sjósund 1 1 2
  Sund 4 3 5 3 5 4 3 4 4 35
  Sundknattleikur 1 1 2
  Bogfimi 1 1 1 1 1 5
  Frjálsar íþróttir 2 1 5 3 4 5 5 5 8 9 1 48
  Badminton 1 1 1 2 5
Körfuknattleikur   Körfuknattleikur 1 1 2
  3×3 körfuknattleikur 2 2
  Hnefaleikar 1 2 2 4 4 13
  Breikdans 1 1 2
Kanóróður   Svigþraut 1 1 1 1 2 6
  Sprettþraut 3 4 3 10
Hjólreiðar   Götuhjólreiðar 2 1 1 4
  Brautarhjólreiðar 1 1 2 2 2 1 3 12
  BMX 2 2 4
  Fjallahjólreiðar 1 1 2
Hestaíþróttir
  Tamning 1 1 2
  Hestaþríþraut 2 2
  Stökk 1 1 2
  Skylmingar 2 2 2 1 1 1 1 1 1 12
  Hokkí 1 1 2
  Knattspyrna 1 1 2
  Golf 1 1 2
Fimleikar   Áhaldafimleikar 1 1 1 1 3 3 4 14
  Nútímafimleikar 1 1 2
  Trampólín 2 2
  Handbolti 1 1 2
  Júdó 2 2 2 2 2 2 2 1 15
  Nútímafimmtarþraut 1 1 2
  Kappróður 2 4 4 4 14
  Sjö manna ruðningur 1 1 2
  Kappsiglingar 2 2 2 2 2 10
  Skotfimi 1 2 2 2 1 1 1 2 1 2 15
  Hjólabretti 1 1 1 1 4
  Íþróttaklifur 1 1 1 1 4
  Brimbrettabrun 2 2
  Borðtennis 1 1 1 1 1 5
  Tækvondó 2 2 2 2 8
  Tennis 1 2 2 5
  Þríþraut 1 1 1 3
Blak   Strandblak 1 1 2
  Blak 1 1 2
  Kraftlyftingar 2 2 2 3 1 10
  Fjölbragðaglíma 3 3 3 3 3 3 18
Fjöldi verðlauna 14 13 18 12 19 18 23 27 20 18 15 21 25 34 39 13 329
Uppsafnað 14 27 45 57 76 94 117 144 164 182 197 218 243 277 316 329
Júlí/ágúst 2024
24.
Mið
25.
Fim
26.
Fös
27.
Lau
28.
Sun
29.
Mán
30.
Þri
31.
Mið
1.
Fim
2.
Fös
3.
Lau
4.
Sun
5.
Mán
6.
Þri
7.
Mið
8.
Fim
9.
Fös
10.
Lau
11.
Sun
Alls
Júlí Ágúst

Tilvísanir

breyta
  1. „Big changes to Olympic sports program on way after Agenda 2020 Summit“. insidethegames.biz. 19. júlí 2014. Afrit af uppruna á 12. september 2015. Sótt 18. júlí 2021.
  2. „Olympic Agenda 2020 Recommendations“ (PDF). IOC. Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 10. ágúst 2015. Sótt 23. júní 2015.
  3. „ICC forms Olympic Working Group to prepare bid for Los Angeles 2028 inclusion“. insidethegames.biz. 10. ágúst 2021. Afrit af uppruna á 10. ágúst 2021. Sótt 12. ágúst 2021.
  4. „No Changes in Core Olympic Sports for Paris 2024“. Around the Rings. 15. september 2017. Afrit af upprunalegu geymt þann 19. apríl 2021. Sótt 16. janúar 2023.
  5. „JO 2024 : les nouveaux sports seront connus en 2019“ (franska). L'Equipe. 15. september 2017. Afrit af uppruna á 16. september 2017. Sótt 16. janúar 2023.
  6. „Paris Olympic bid committee is open to esports on 2024 Olympic program“. ESPN. Associated Press. 8. ágúst 2017. Afrit af uppruna á 24. nóvember 2017. Sótt 9. ágúst 2017.
  7. Morris, Chris (9. ágúst 2017). „Video Games May Be a Part of the 2024 Olympics“. Fortune (enska). Afrit af uppruna á 12. apríl 2022. Sótt 16. janúar 2023.
  8. 8,0 8,1 8,2 „Two phase selection process confirmed for new Paris 2024 sports but esports will not be considered“. insidethegames.biz. 19. júlí 2018. Afrit af uppruna á 13. apríl 2022. Sótt 19. júlí 2018.
  9. „Olympic Games: Paris organisers propose breakdancing to IOC as a new sport for 2024“. BBC Sport. 21. febrúar 2019. Afrit af uppruna á 22. febrúar 2022. Sótt 24. febrúar 2019.
  10. 10,0 10,1 „Olympic Games: Breakdancing takes step closer to Paris 2024 inclusion“. BBC Sport. 25. júní 2019. Afrit af uppruna á 22. apríl 2022. Sótt 26. júní 2019.
  11. „Gender equality and youth at the heart of the Paris 2024 Olympic Sports program“. International Olympic Committee. 7. desember 2020. Afrit af uppruna á 17. apríl 2023. Sótt 17. apríl 2023.
  12. „Paris 2024 Event Programme“ (PDF). Afrit af upprunalegu (PDF) geymt þann 7. desember 2020.
  13. „USA Boxing accuses IBA of trying to "sabotage" Olympic qualifiers“. insidethegames.biz. 21. febrúar 2023.
   Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.