Svavar Pétur Eysteinsson
Svavar Pétur Eysteinsson (26. apríl 1977 — 29. september 2022) var íslenskur tón- og myndlistarmaður sem þekktur var undir listamannsnafninu Prins Póló.
Svavar Pétur Eysteinsson | |
---|---|
Upplýsingar | |
Fæddur | Svavar Pétur Eysteinsson 26. apríl 1977 |
Dáinn | 29. september 2022 (45 ára) |
Önnur nöfn | Prins Póló |
Störf | Söngvari, gítarleikari |
Ár virkur | 2007 - 2022 |
Stefnur | Tilraunapopp, Indí-rokk |
Hljóðfæri | Rödd, Gítar |
Samvinna | Múldýrið Rúnk Skakkamange FM Belfast Dr. Gunni Moses Hightower |
Vefsíða | http://www.prinspolo.com |
Æviágrip
breytaSvavar var fæddur og uppalinn í Breiðholti og nam grafíska hönnun við Listaháskóla Íslands. Sem tónlistarmaður kom Svavar fram með hljómsveitunum Múldýrinu, Rúnk og Skakkamanage en gaf einnig út tónlist undir listamannsnafni sínu Prins Póló. Svavar var kvæntur Berglindi Häsler og eignaðist þrjú börn með henni. Á árunum 2016 til 2020 var fjölskyldan búsett í Berufirði þar sem þau stunduðu lífræna ræktun og ráku tónleikastað og ferðaþjónustu undir nafninu Havarí. Svavar var einnig frumkvöðull í matargerð og þróaði og markaðssetti grænmetisrétti úr íslenskum hráefnum.
Veikindi og andlát
breytaSvavar greindist með fjórða stigs krabbamein árið 2018 og ræddi baráttu sína við meinið opinskátt í fjölmiðlum. Hann lést 45 ára, 29. september 2022.
Plötur Prins Póló
breytaBreiðskífur
breyta- Jukk (2010)
- Sorrí (2014)
- París norðursins (2014)
- Þriðja kryddið (2018)
- Falskar minningar (2020)
Stuttskífur
breyta- Einn heima (2009)
- Havarí Ábreiður (2019)
- Falskar Jólaminningar (2019)
- Hvernig Ertu? (2022)
- Sjoppan (2022)
Tónleikaplötur
breyta- Túrbó (2019)