Norðursjávartungumál
Norðursjávartungumál er önnur flokkun á hópi vesturgermanskra mála sem felur í sér fornfrísnesku, fornensku og fornsaxnesku. Ekki er talið að tungumálin í þessum hópi séu afleidd af einu sameiginlegu forfeðramáli, frekar að þau væru hópur náskyldra mállýska sem urðu fyrir svipuðum breytingum á sama tíma.
Norðurhafsgermönsk tungumál | ||
---|---|---|
Ætt | Indóevrópskt Germanskt | |
Undirflokkar | Engilfrísneskt Lágþýska |
Þýski málvísindamaðurinn Friedrich Maurer stakk fyrst upp á þessari flokkun í bókinni Nordgermanen und Alemanen (1942).