Leynilögga
Leynilögga er íslensk grín-spennumynd frá 2021, myndin var næst-tekjuhæsta kvikmynd ársins 2021 á Íslandi og tekjuhæsta íslenska myndin. Myndin fjallar um Bússa, lögregluþjón sem afneitar kynhneigð sinni og verður ástfangin af samsytarfsfélaganum sínum, Herði á meðan hann rannsakar bankarán. Hannes Þór Halldórsson leikstýrði. Handritshöfundar voru Hannes Þór Halldórsson, Nína Petersen og Sverrir Þór Sverrisson en söguna skrifuðu Hannes, Auðunn Blöndal og Egill Einarsson. Framleiðendur voru Elli Cassata, Lilja Ósk Snorradóttir og Snorri Þórisson. Pegasus framleiddi myndina ásamt Stöð 2 og Sambíóunum. Myndin var frumsýnd 20. október 2021.
2021 var myndin næst-vinsælasta kvikmyndin á Íslandi á árinu, á eftir No Time to Die en vinsælasta íslenska kvikmyndin. Hún hlaut 76.375.016 milljónir og með 41 þúsund í aðsókn.[1]
Variety kallaði myndina fyndna en ófrumlega.[2]
Söguþráður
breytaLögregluþjóninn Bússi (Auðunn Blöndal) sem afneitar kynhneigð sinni, verður ástfangin af nýja samstarfsfélaga sínum Herði (Egill Einarsson), á meðan hann rannsakar röð bankarána þar sem engu virðist hafa verið stolið.
Leikarar
breyta- Auðunn Blöndal (Bússi)
- Egill Einarsson (Hörður)
- Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir (Þorgerður)
- Vivian Ólafsdóttir (Stefanía)
- Sverrir Þór Sverrisson (Klemenz)
- Björn Hlynur Haraldsson (Rikki)
- Júlíana Sara Gunnarsdóttir (Lilja)
- Steinþór Hróar Steinþórsson (Svavar)
- Gunnar Hansson (Softý)
- Jón Gnarr (Forsætisráðherra)
- Jón Jónsson (Halli)
Framleiðsla
breytaTökur hófust í Reykjavík þann 30. september 2020 og enduðu 15. desember sama ár. Á Instagram reikningi Sverris Þórs Sverrissonar þann 14. apríl 2021 greindi hann frá því að aukatökur færu fram, þær kláruðust seinna í apríl 2021.
Útgáfa
breytaUpphaflega átti myndin að vera sýnd á Íslandi 20. ágúst 2021 en því var frestað til 20. október vegna sóttvarnarsjónarviðmiða. Sýningar enduðu á Íslandi fyrir jól 2021 og kom myndin út á VOD leigum Símans og Vodafone þann 25. desember sama ár.
Myndin hét Cop Secret á ensku og 2 Bad Cops á japönsku þegar myndin var dreif erlendis frá.
Framhald
breytaÍ viðtali fyrir myndina, þann 14. október 2021 sagði Auðunn við Feyki.is að það væri möguleiki á framhaldi. Hann sagði svo að Pétur Jóhann Sigfússon myndi líklega leika í framhaldsmyndinni.[3]
Í viðtali við Sverri Þór Sverrisson og Hannes Þór Halldórsson í fréttum Stöðvar tvö 22. nóvember 2022 sögðu þeir að það væri byrjað að vinna á framhaldsmynd sem að myndi heita Leynilögga 2 sem að myndi koma út jólin 2024.[4]
Heimildir
breyta- ↑ „Vinsælustu bíómyndirnar 2021, tekjur aukast um rúm 62%“. Klapptré. 18. janúar 2022.
- ↑ Weissberg, Jay (17. ágúst 2021). „'Cop Secret' Review: A Derivative Action Movie Parody Set in Iceland for a Change“. Variety.
- ↑ Feykir. „Leynilögga á leið í bíó: „Það er víst byrjað að ræða framhald..."“. Feykir.is. Sótt 30. janúar 2022.
- ↑ Pétursdóttir, Bjarki Sigurðsson,Lillý Valgerður (22. nóvember 2022). „Byrjaðir að vinna að Leynilöggu 2 - Vísir“. visir.is. Sótt 23. nóvember 2022.