Laugalækjarskóli
Laugalækjarskóli er skóli í Reykjavík sem starfar eingöngu á unglingastigi (7.-10.bekk). Nemendur eru um það bil 317 í 14 bekkjum og starfsmenn um 44. Skólastjóri er Jón Páll Haraldsson.
Flestir nemendur skólans koma úr Laugarnesskóla. Gildi skólans eru; Virðing, eldmóður, gleði.
Stefna skólans hefur verið mörkuð eftirfarandi:
Laugalækjarskóli vill vera í fararbroddi hvað varðar metnað í námi, kennslu og öllu starfi. Við viljum útskrifa ábyrga og sjálfstæða nemendur, tilbúna til að takast á við frekari áskoranir. Lögð er áhersla á jákvæðni, samstarf og uppbyggileg samskipti milli allra í skólasamfélaginu. Jafnræði og mannréttindi eru forgangsverkefni. Umhyggja og vellíðan eru samstarfsverkefni allra í skólasamfélaginu. Sterk sjálfsmynd nemenda er kappsmál og lykill í forvarnastarfi. Við hvetjum nemendur til sjálfstæðrar og gagnrýninnar hugsunar.
Laugalækjarskóli hefur eins og aðrir grunnskólar Reykjavíkur leitast við að sveigja starfsþætti sína enn frekar í átt til einstaklingsmiðaðra náms og aukinnar samvinnu nemenda. Í því verkefni skiptir nýting tölvutækninnar miklu máli. Þróa þarf aðferðir og tæki til að hafa yfirlit yfir framfarir nemenda og stöðu þeirra í náminu. Efling sjálfsmyndar nemenda og félagsfærni hefur einnig verið í brennidepli.
Skólahverfi
breytaLaugarnesskóli og Laugalækjarskóli mynda saman grunnskóla Laugarneshverfis, annar starfar á barnastigi og hinn á unglingastigi.
Tenglar
breyta- Heimasíða skólans. Geymt 24 janúar 2019 í Wayback Machine
- Facebook síða skólans.