Kristinn H. Gunnarsson
Kristinn Halldór Gunnarsson (f. 19. ágúst 1952 í Reykjavík) var alþingismaður fyrir Vestfjarðakjördæmi og Norðvesturkjördæmi á árunum 1991-2009.
Kristinn H. Gunnarsson (KHG) | |
| |
Fæðingardagur: | 19. ágúst 1952 |
---|---|
Fæðingarstaður: | Reykjavík |
Þingsetutímabil | |
1991-1998 | í Vestf. fyrir Alþb. |
1998 | í Vestf. fyrir Ufl. |
1998-2003 | í Vestf. fyrir Framsfl. ✽ |
2003-2007 | í Norðvest. fyrir Framsfl. ✽ |
2007-2009 | í Norðvest. fyrir Frjálsl. |
✽ = stjórnarsinni | |
Embætti | |
1998-1999 | Formaður sjávarútvegsnefndar |
2003-2004 | Formaður iðnaðarnefndar |
1999-2003 | Þingflokksformaður (Framsfl.) |
2007-2008 | Þingflokksformaður (Frjálsl.) |
Tenglar | |
Æviágrip á vef Alþingis – Vefsíða |
Kristinn lauk stúdentsprófi frá Menntaskólanum í Reykjavík árið 1972 og BS-gráðu í stærðfræði frá Háskóla Íslands árið 1979. Hann hóf feril sinn í stjórnmálum hjá Alþýðubandalaginu en hann var bæjarfulltrúi fyrir flokkinn í bæjarstjórn Bolungarvíkur á árunum 1982-1998. 1991 náði hann kjöri á Alþingi í Vestfjarðakjördæmi. 1998 sagði hann skilið við Alþýðubandalagið, gekk í Framsóknarflokkinn og náði kjöri fyrir hann í kosningunum 1999. Síðan 2003 hefur Kristinn verið þingmaður Norðvesturkjördæmis. Samstarf Kristins og þingflokks Framsóknarflokksins var oft örðugt en hann lét gjarnan í ljós aðrar skoðanir á málum eins og fjölmiðlamálinu og Íraksmálinu en aðrir þingmenn flokksins. Í september 2004 ákvað þingflokkurinn að Kristinn myndi ekki sitja í neinum nefndum fyrir flokkinn vegna „trúnaðarbrests“ milli flokksins og hans.[1] Á þingflokksfundi í maí 2005 var það þó samþykkt að Kristinn tæki sæti í tveimur nefndum. Í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007 bauð Kristinn sig fram í fyrsta sæti listans gegn Magnúsi Stefánssyni félagsmálaráðherra en beið lægri hlut og lenti raunar í þriðja sæti. Skömmu síðar gekk hann til liðs við Frjálslynda flokkinn og tók annað sætið á lista frjálslyndra í norðvestri á eftir formanninum Guðjóni Arnari Kristjánssyni. Í kosningunum 2007 náði hann svo kjöri fyrir þriðja stjórnmálaaflið á sínum þingmannsferli. Hann var ekki í kjöri í alþingiskosningunum 2009 eftir að hann sagði skilið við Frjálslynda flokkinn og reynt fyrir sér í prófkjöri Framsóknarflokksins þar sem hann lenti í 8. sæti af 9 frambjóðendum.
Heimild
breyta- ↑ „mbl.is - Trúnaður milli Kristins H. Gunnarssonar og þingflokks Framsóknar „brostinn"“. 28. september 2004. Sótt 21. maí 2007.