Ingibjörg Ólöf Isaksen

Ingibjörg Ólöf Isaksen (f. 14. febrúar 1977) er þingmaður Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi. Hún var kjörin sem oddviti Framsóknar í kjördæminu í Alþingiskosningunum 2021.

Ingibjörg Ólöf Isaksen (IÓI)
Alþingismaður
frá  kjördæmi    þingflokkur
2021  Norðaustur  Framsóknarfl.
Bæjarfulltrúi á Akureyri
frá til    flokkur
2014 2021  Framsóknarfl.
Sveitarstjórnarmaður í Eyjafjarðarsveit
frá til    flokkur
2012 2014  F-listi
Persónulegar upplýsingar
Fædd14. febrúar 1977 (1977-02-14) (47 ára)
Reykjavík
StjórnmálaflokkurFramsóknarflokkurinn
MakiSigurjón Karel Rafnsson
Börn6
MenntunÍþróttafræði
HáskóliKennaraháskóli Íslands
Æviágrip á vef Alþingis

Ingibjörg útskrifaðist með stúdentspróf frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti árið 1997 og tók BS-próf í íþróttafræði frá Kennaraháskóla Íslands árið 2003.

Ingibjörg vann sem kennari við Rimaskóla frá 2003 til 2004, við Giljaskóla frá 2004 til 2005 og við Brekkuskóla frá 2005 til 2012. Hún sat í sveitarstjórn Eyjafjarðarsveitar frá 2012 til 2014 og í bæjarstjórn Akureyrar frá 2014 til 2021. Á þeim tíma var hún formaður íþróttaráðs Akureyrar frá 2014 til 2017. Hún sat jafnframt í stjórn Norðurorku frá 2014 til 2021 og var stjórnarformaður hennar síðustu tvö árin. Frá 2018 til 2021 var hún framkvæmdastjóri Læknastofa Akureyrar.

Ingibjörg bauð sig fram í prófkjöri Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2021 og hafði betur í baráttu um oddvitasæti flokksins á móti sitjandi alþingismanninum Líneik Önnu Sævarsdóttur.[1]

Tilvísanir

breyta
  1. Skapti Hallgrímsson (17. apríl 2021). „Ingibjörg verður efst hjá Framsókn“. Akureyri.net. Sótt 9. janúar 2022.
   Þetta æviágrip sem tengist stjórnmálum er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.