Hverfisveppur
Hverfisveppur eða hverfiskrýfa[1] (fræðiheiti: Pholiota mutabilis) er hattsveppur af blínusveppsætt sem vex í klösum, einkum á dauðum trjástubbum í skóglendi. Hatturinn verður 3-6sm í þvermál og stafurinn er langur og mjór með hring. Sveppurinn er ljósbrúnn en neðri hluti stafsins dökkur og flagnaður. Hverfisveppur þykir góður ætisveppur. Aðeins hatturinn er étinn þar sem stafurinn er of seigur. Hins vegar er varasamt að tína þennan svepp vegna þess hve auðvelt er að rugla honum saman við eitraðar tegundir, eins og t.d. hina baneitruðu viðarkveif.
Hverfisveppur | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Þurr hverfisveppur
| ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Pholiota mutabilis (Schaeff.) Singer & A. H. Sm. (1946) | ||||||||||||||
Samheiti | ||||||||||||||
Kuehneromyces mutabilis |
Tenglar
breyta- ↑ Helgi Hallgrímsson (2010). Sveppabókin. Skrudda. bls. 280. ISBN 978-9979-655-71-8.
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist Hverfisveppur.
Wikilífverur eru með efni sem tengist Pholiota mutabilis.