Huntingtonssjúkdómur
Huntingtonssjúkdómur (HD) er erfðasjúkdómur þar sem heilafrumur hrörna smán saman. Fyrstu einkenni eru oft persónuleikabreytingar og skert andleg hæfni. Sjúkdómurinn hefur áhrif á hreyfigetu og koma fram óeðlilegar og óvenjulegar hreyfingar, grettur og hægar stjórnlausar hreyfingar, skyndilegir og stundum öfgafullir kippir í útlimum, andliti og fleiri líkamshlutum og óöruggt göngulag. Smám saman minnkar talgeta og færni til að samhæfa hreyfingar. Einkenna verður yfirleitt vart á milli 30 og 50 ára en geta byrjað á öllum aldri. Um 8% tilfella greinast fyrir 20 ára aldur og eru þá með einkennum sem svipa til parkinsonsveiki.[1] Norskur héraðslæknir í Setesdalen, Johan Christian Lund að nafni, lýsti sjúkdóminum fyrst árið 1860 en honum var lýst kerfisbundið síðar af George Huntington. Sjúkdómurinn gekk í Noregi undir nafninu ”Setesdalsrykkja” eða ”rykkja” og er líklegt að sjúkdómurinn hafi stafað af einangrun og innrækt. Um 250 manns eru greindir með sjúkdóminn í Noregi.
Heimildir
breytaTilvísanir
breyta- ↑ Neurologic Clinics.
{{cite journal}}
:|title=
vantar (hjálp)