Hekatajos frá Abderu
- Um eldri sagnaritara að sama nafni, sjá Hekatajos.
Hekatajos frá Abderu (eða Teos) var forngrískur sagnaritari og efahyggjumaður, sem var uppi á 4. og 3. öld f.Kr.. Hann nam heimspeki hjá efasemdamanninum Pyrrhoni en flutti síðar til Alexandríu. Hann fylgdi Ptolemajosi I í leiðangur til Sýrlands og sigldi með honum upp Níl allt til Þebu (Díogenes Laertíos ix. 61). Hann skrifaði um ferðir sínar en þekktast rita hans var Um Egyptana. Sagnaritarinn Díodóros frá Sikiley studdist við verk Hekatajosar.
Varðveitt brot verka Hekatajosar eru birt hjá C. W. Muller (ritstj.) Fragmenta historicorum Graecorum.
Tengt efniBreyta
HeimildBreyta
- Fyrirmynd greinarinnar var „Hecataeus of Abdera“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 8. nóvember 2005.