Gálgaskegg
Gálgaskegg (fræðiheiti: Bryoria implexa) er tegund fléttna af litskófarætt. Gálgaskegg er flokkað sem tegund í bráðri útrýmingarhættu á válista íslenskra plantna 1996.
Gálgaskegg | ||||||||||||||
---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|---|
Ástand stofns | ||||||||||||||
Vísindaleg flokkun | ||||||||||||||
| ||||||||||||||
Tvínefni | ||||||||||||||
Bryoria implexa |
Útlit
breytaGálgaskegg er dökkbrúnt, stundum með ólífublæ, matt eða eilítið gljáandi og gert úr löngum þráðum og líkist nokkuð jötunskeggi. Þalið er hangandi, hárkennt, 5-10 cm langt og sívalt. Stofngreinarnar eru 0,2-0,3 mm í þvermál en fínni greinar 0,1 mm í þvermál.[2]
Gálgaskegg hefur ekki sést með askhirslum á Íslandi.[2]
Útbreiðsla og búsvæði
breytaGálgaskegg vex á hraundröngum[1] og finnst bæði í Norður-Ameríku og í Evrópu.[3] Það hefur aðeins fundist á einum stað á Íslandi, á Gálgakletti á Álftanesi og þaðan er íslenskt heiti tegundarinnar dregið.[2]
Efnafræði
breytaGálgaskegg inniheldur norstictinsýru.[2]
Þalsvörun gálgaskeggs er K+ veik gul svörun, C-, KC-, P+ gul.[2]
Tilvísanir
breyta- ↑ 1,0 1,1 Náttúrufræðistofnun Íslands (1996). Válisti 1: Plöntur. Reykjavík: Náttúrufræðistofnun Íslands.
- ↑ 2,0 2,1 2,2 2,3 2,4 Flóra Íslands (án árs). Gálgaskegg - Bryoria implexa. Sótt þann 9. apríl 2019.
- ↑ Velmala, S., Myllys, L., Goward, T., Holien, H., & Halonen, P. (2014). Taxonomy of Bryoria section Implexae (Parmeliaceae, Lecanoromycetes) in North America and Europe, based on chemical, morphological and molecular data. Annales Botanici Fennici 51(6): 345-372. Finnish Zoological and Botanical Publishing Board.