Fear Factory

Fear Factory er bandarísk þungarokkshljómsveit sem var stofnuð árið 1990. Textar hljómsveitarinnar fjalla einkum um tækniþróunina og að hún eigi eftir að koma mannkyninu í koll, að mannkynið verði úrelt og vélarnar taki við. Einkenni tónlistarinnar er hraður trommu- og bassataktur ásamt aggressífum öskurtón.

Fear Factory í Þýskalandi árið 2015.
Burton C. Bell, söngvari FF.
Dino Cazares gítarleikari FF.

Ósætti hljómsveitarmeðlima hefur sett sitt mark á bandið. Eftir aldamót hættu bassa- og trommuleikarinn, Christian Olde Wolbers og Raymond Herrera.

Árið 2020 hætti söngvarinn, Burton C. Bell og hélt sig við sólóband sitt, Ascension of the Watchers. Gítarleikarinn Dino Cazares ákvað að halda áfram með hljómsveitina og fundu nýjan söngvara. [1]

BreiðskífurBreyta

MeðlimirBreyta

  • Dino Cazares – Gítar, bakraddir (1989–2002, 2009–), bassi (1992, 1995, 2009, 2012, 2015, 2020–), hljómborð (1995), tölvutrommur (2012)
  • Mike Heller – Trommur (2012–)
  • Tony Campos – Bassi, bakraddir (2015–)
  • Milo Silvestro – Söngur (2023–)

Fyrrum meðlimirBreyta

  • Burton C. Bell – Söngur (1989–2002, 2003–2006, 2009–2020), hljómborð (1995)
  • Raymond Herrera – Trommur (1989–2002, 2003–2006)
  • Christian Olde Wolbers – Bassi, bakraddir (1993–2002, 2003–2006), gítar (2003–2006)
  • David Gibney – Bassi (1989–1991)
  • Andy Romero – Bassi (1991–1992)
  • Andrew Shives – Bassi (1992–1993)
  • Byron Stroud – Bassi (2003–2006, 2009–2012)
  • Gene Hoglan – Trommur (2009–2012)
  • Matt DeVries – Bassi, bakraddir (2012–2015)

ÍtarefniBreyta

TilvísanirBreyta

   Þessi tónlistargrein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.
  1. [1]Blabbermouth, skoðað 29/9 2020