Breska
Breska eða brýþonska var keltneskt tungumál sem talað var í Bretlandi áður en Englarnir námu landið. Breska þróaðist úr fornkeltnesku. Fyrir 6. öld hafði breska breyst í fjögur aðskilin tungumál: velsku, bretónsku, kornísku og kúmbrísku. Talið er að péttneska gæti verið skyld bresku.
Breska | ||
---|---|---|
Heimshluti | Bretland, fyrir suðan Firth of Forth | |
Tungumálakóðar | ||
ISO 639-1 | Ekkert
| |
ISO 639-2 | cel
| |
SIL | Ekkert
| |
ATH: Þessi grein gæti innihaldið hljóðfræðitákn úr alþjóðlega hljóðstafrófinu í Unicode. |
Merki um áhrif frá latínu á bresku finnast í velsku, sérstaklega í þeim orðum sem tengjast kirkjunni og kristni. Seinna var enska tekin upp í staðinn fyrir bresku, og tungumálið dó út.