Blóðgjöf

Puzzle stub.svg  Þessi grein er stubbur. Þú getur hjálpað til með því að bæta við greinina.

Blóðgjöf er þegar einstaklingur gefur blóð sjálfviljugur með blóðtöku. Blóðgjafar eru metnir með tilliti til öryggis blóðs þeirra, til að mynda vegna smitsjúkdóma. Þeir eru spurðir út í sjúkrasögu og heilsufar. Dæmigert magn blóðtöku eru 450 millilítrar og er tökustaður vanalega úr bláæð í olnbogabót. Almennt mega fullorðnir karlmenn gefa á 3 mánaða fresti en konur á 4 mánaða fresti.

Blóðgjöf.
Stundum er blóði safnað með bílum sem fara á milli staða.

Blóðflokkar skiptast í A, B, AB, eða O en einnig með tilliti til svokallaðs rhesus-þáttar. Í blóðgjöf milli fólks verður að taka tillit til blóðflokka þeirra en ekki mega allir blandast saman. Blóðvökvi getur geymst í allt að 1-2 ár, rauð blóðkorn í 35-42 daga og blóðflögur í mesta lagi viku. Blóðgjafir eru meðal annars mikilvægar í læknisaðgerðum og þegar alvarleg slys eiga sér stað. Þá þarf að bæta upp fyrir blóðmissi.

Blóðbankar eru oftast þær stofnanir sem sjá um meðhöndlun blóðgjafa og tengjast þeir öðrum sjúkrastofnunum.

Alþjóðaheilbrigðisstofnunin WHO er með Alþjóðablóðgjafardaginn þann 14. júní.

Blóðgjöf á ÍslandiBreyta

Fyrsta skipulagða starfsemi til blóðgjafar var árið 1935 þegar blóðgjafasveit Rover-skáta Væringjafélagsins í Reykjavík gaf blóð.[1] Blóðbankinn á Íslandi var stofnaður árið 1953 og var á Barónstíg þar til ársins 2007. Blóðbankinn hefur nú starfsstöðvar á Snorrabraut 60 í Reykjavík og á Glerártorgi, Akureyri.

Árið 2021 fengu samkynhneigðir karlmenn fyrst að gefa blóð. [2]

HeimildBreyta

 
Wikimedia Commons er með margmiðlunarefni sem tengist

Fyrirmynd greinarinnar var „Blood donation“ á ensku útgáfu Wikipedia. Sótt 7. jan. 2017.

TenglarBreyta

Blóðbankinn Geymt 2018-08-27 í Wayback Machine

TilvísanirBreyta

  1. Upphaf blóðbankastarfsemi á Íslandi Geymt 2018-08-27 í Wayback Machine Blóðbankinn. Skoðað 7. janúar, 2017.
  2. Hommar mega loksins gefa blóð Fréttablaðið, sótt 9/9 2021