Íslenska alfræðiorðabókin A–Ö
(Endurbeint frá Íslenska alfræðiorðabókin)
Íslenska alfræðiorðabókin A–Ö er alfræðirit á íslensku, sem gefið var út árið 1990 af bókaútgáfunni Erni og Örlygi. Bókin er í þremur bindum, inniheldur um 37.000 efnisorð og 4.500 teikningar og kort, og er jafnframt fyrsta íslenska alfræðiritið, almenns umfangs sem samið er fyrir fullorðna lesendur.[1] Ritstjórar voru Dóra Hafsteinsdóttir og Sigríður Harðardóttir. Önnur prentun var gerð 1992.
Land | Ísland |
---|---|
Tungumál | íslenska |
Stefna | alfræðiorðabók |
Útgefandi | Örn og Örlygur |
Útgáfudagur | 1990 |
ISBN | ISBN 9979-55-000-7 |
Bókin er byggð á danska alfræðiritinu Fakta, Gyldendals etbinds leksikon sem gefið var út 1988.[2] Samningar um útgáfuna tókust 1987 og upphaflega stóð til að alfræðiorðabókin kæmi út samhliða dönsku útgáfunni.
Tilvísanir
breyta- ↑ „Fyrsta alfræðiorðabókin á íslensku“; grein í Degi 1991
- ↑ Dóra Hafsteinsdóttir; Sigríður Harðardóttir (2001). „Íslenska alfræðiorðabókin: Lýsing á viðamiklu orðabókarverkefni“. Orð og tunga. 5: 13.