Árnes (þorp)
Árnes er þorp í Skeiða- og Gnúpverjahreppi. Íbúar voru 72 árið 2023. Það er kennt við eyjuna Árnes. Í Árnesi er félagsheimili, sveitarstjórn Skeiða- og Gnúpverjahrepps og grunnskólinn Þjórsárskóli. Er þar Þjórsárstofa sem sýnir ýmislegt sem viðkemur Þjórsá. Í Árnesi er sundlaug, tjaldsvæði, gistiheimili og söluskáli. [1]
Tenglar
breyta- Heimasíða Skeiða og Gnúpverjahrepps
- Þjórsárstofa Geymt 27 október 2020 í Wayback Machine
Tilvísanir
breyta- ↑ Árnes Geymt 12 maí 2015 í Wayback Machine Suðurland. Skoðað 29. mars, 2016