Barki er líffæri sem tengir kokið eða barkakýlið við lungun og auðveldir loftflæði úr þeim. Hann er þakinn bifhærðum þekjufrumum með bikarfrumum sem framleiða slím. Slímið þekur frumurnar í barkanum og dregur að sér agnir eins og duft og gerla. Bifin flytja agnirnar upp úr barkanum í barkakýlið og svo í kokið þar sem þeim er annaðhvort kyngt í magann eða þrýst úr í hráka.